Talsmaður Arctic Fish reyndi að halda því fram í viðtali við héraðsmiðilinn BB fyrir um tveimur vikum að laxadauðinn í sjókvíunum í Dýrafirði væri 3%. Hið rétta er að dauðinn er fimm til sjö sinnum meiri eða 15 til 20% og eru þær tölur því miður líklegar til að hækka.

Annað hvort veit þetta fyrirtæki ekkert hvað það er að gera eða talsmenn þess reyna að afvegaleiða innlenda fjölmiðla. Þess má geta að talsmaðurinn er jafnframt forseti bæjarstjórnar Ísafjarðar.

Skv umfjöllun vísis:

„Í tilkynningu frá fiskeldisfyrirtækinu segir að laxadauðinn í byrjun árs eigi sér eðlilegar og náttúrulegar skýringar. …

Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, segir ljóst að of kaldur sjór verði alltaf reglulegt vandamál við strendur Íslands.

„Það hefur verið álitamál hvort það sé hægt að stunda sjókvíaeldi með viðunandi hætti á Vestfjörðum út af sjávarkulda,“ segir Jón.

Síðustu ár hafi hitastig sjávarins þó verið þokkalega hliðhollur fiskeldinu en í vetrarlægðum sem þessum verði alltaf mikill laxadauði.

Jón segir afföllin á Íslandi allt of mikil; þau hafi verið um 18% á öllu landinu í fyrra.

„Við skulum átta okkur á því að í Noregi er þetta hlutfall í kring um 12 prósent og þykir algjörlega óásættanlegt í Noregi. Það er með ólíkindum að stjórnmálafólk hafi ekki vaknað og sé að beita sér fyrir því að þessi iðnaður lagi sín mál,“ segir Jón.“

Hann grunar þó að sjókvíaeldisfyrirtækin hafi náð miklum tökum á íslenskum stjórnmálum.

„Þessi iðnaður er búinn að vefa sig inn í stjórnmálalífið hér við land með mjög lævíslegum hætti. Formaður bæjarráðs á Ísafirði er starfsmaður sjókvíaeldisfyrirtækis, formaður bæjarráðs  í Bolungarvík er starfsmaður sjókvíaeldis og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar,“ segir Jón.