Login on site

×
Login on site
logo
Icelandic Wildlife Fund
logo
  • Forsíða
  • Um okkur
  • Fréttir
  • Vídeó: Undir yfirborðinu
  • Styrktu baráttuna
  • English
Vernd villtra laxastofna
Barátta Seyðfirðinga gegn sjókvíaeldi ber árangur

Frábær varnarbarátta fólksins á Seyðisfirði fyrir vernd fjarðarins er að bera árangur. Bravó!

Í frétt RÚV segir:

Helgunarsvæði Farice sæstrengsins í Seyðisfirði er svo stórt að það útilokar fyrirhugað eldissvæði í Sörlastaðavík. Skipulagsstofnun hefur upplýst að helgunarsvæði Farice strengsins hafi verið sýnt of lítið á skipulagstillögu. Þá þykja tvö af þremur fyrirhuguðum eldissvæðum í firðinum þrengja um of að siglingaleiðum samkvæmt áhættugreiningu.

Laxar fiskeldi Austfjarða áformar 10 þúsund tonna eldi í Seyðisfirði á þremur stöðum. Innsta eldissvæðið á að vera í Sörlastaðavík en þar er fjörðurinn þröngur – aðeins 1,2 kílómetrar á breidd.  …

Þetta þýðir að í sunnanverðum firðinum er aðeins eftir mjó ræma fyrir eldissvæðið í Sörlastaðavík, kannski 100 metra breið. Það ræðst af nákvæmri staðsetningu strengsins sem ekki fæst uppgefin af öryggisástæðum en gróflega má sjá strenginn á sjókortum. Kvíarnar sjálfar taka hundrað metra en festingarnar þurfa að liggja skáhallt niður á botninn og því er ekki pláss fyrir þær öðruvísi en að þær fari inn á helgunarsvæði Farice. Samkvæmt upplýsingum frá Farice verður ekki gefinn neinn afsláttur af helguninni enda væri það brot á fjarskiptalögum.

Af sömu ástæðum er takmarkað pláss á næsta eldissvæði sem er í Selsstaðavík en þar er snjóflóðahætta. Veðurstofan bendir á í minnisblaði að atvinnusvæði þurfi að vera neðan b-línu. Fyrirhugað kvíaból í Selsstaðavík standist ekki það viðmið og sé á C hættusvæði. Tjón hafi orðið á þessu svæði í snjóflóðum 1974 og 1988.

Þessu til viðbótar má nefna að eldissvæði í Sörlastaðavík og Selsstaðavík myndu þrengja að siglingum um Seyðisfjörð. Á sumrin er þar mikil umferð stórra skemmtiferðaskipa.

0 Comments
  • Laxar fiskeldi
  • Seyðisfjörður
  • Skipulagsstofnun
0 Like!
Deila
Magnús Sveinn Helgason

Recent comments

    Tags

    Arnarfjörður Arnarlax Bann við sjókvíaeldi Erfðablöndun Hafrannsóknastofnun Laxadauði Laxalús MAST Matvælastofnun Mengun Noregur Skotland Sleppislys strokulaxar Áróðursstríð sjókvíaeldisfyrirtækja
    Skilmálar og persónuvernd
    Umhverfissjóðurinn The Icelandic Wildlife er ekki rekinn í ágóðaskyni (non-profit).
    Hann er sjálfseignarstofnun og starfar samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir.

    © 1996-2018, Icelandic Wildlife Fund
    logo