Login on site

×
Login on site
logo
Icelandic Wildlife Fund
logo
  • Forsíða
  • Um okkur
  • Fréttir
  • Vídeó: Undir yfirborðinu
  • Styrktu baráttuna
  • English
Dýravelferð
Blóðþorrasmit hafa gert út af við allt fiskeldi. Nú gæti sama hæglega gerst á Austfjörðum

Veiran sem veldur blóðþorra olli hruni í sjókvíaeldi á laxi við Færeyjar og Chile. Sama hefur nú gerst á Austfjörðum.

Sjókvíaeldisfyrirtækin eru að gera öll sömu mistökin og hafa verið gerð annars staðar þar sem þessi skaðlegi iðnaður er stundaður. Þau vilja ekki, eða eru einfaldlega ófær um, að draga lærdóm af sögunni.

Það sem er enn meira áhyggjuefni er að sama virðist gilda um íslensk stjórnvöld. Þau hafa gefið framleiðslukvótana á eldislaxi, sem hvíla á aðgengi sameiginlegra hafsvæða þjóðarinnar, þannig að örfáir einstaklingar hafa nú orðið milljóna- og milljarðamæringar á sama tíma og greinin þykist ekki geta greitt fyrir afnotin.

Reikningurinn fyrir starfseminni er svo sendur beint til umhverfisins og lífríkisins sem eru látin niðurgreiða þennan ósóma.

Í umfjöllun Stundarinnar segir ma:

ISA-veiran er mikill vágestur í laxeldi í sjókvíum í heiminum og hefur útbreiðsla þessarar veiru meðal annars valdið stórtjóni í laxeldi í löndum eins og Færeyjum og Síle í gegnum árin.

ISA-veiran fannst líka í eldislaxi í Reyðarfirði í nóvember síðastliðinn og er ein af spurningum sem vaknað hefur hvort um sé að ræða sama smitið á veirunni: Að veiran hafi með einhverjum hætti borist frá Reyðarfirði til Berufjarðar á síðustu mánuðum. Umfang heildartjónsins vegna þessarar ISA-veirusýkingar gæti því verið umtalsvert ef það er þannig að um sé að ræða sama smit og á Reyðarfirði í nóvember.  …

ISA-veiran er mikill vágestur í laxeldi í sjókvíum í heiminum og hefur útbreiðsla þessarar veiru meðal annars valdið stórtjóni í laxeldi í löndum eins og Færeyjum og Síle í gegnum árin.

ISA-veiran fannst líka í eldislaxi í Reyðarfirði í nóvember síðastliðinn og er ein af spurningum sem vaknað hefur hvort um sé að ræða sama smitið á veirunni: Að veiran hafi með einhverjum hætti borist frá Reyðarfirði til Berufjarðar á síðustu mánuðum. Umfang heildartjónsins vegna þessarar ISA-veirusýkingar gæti því verið umtalsvert ef það er þannig að um sé að ræða sama smit og á Reyðarfirði í nóvember.  Um er að ræða fyrsta skiptið sem ISA-veiran kemur upp á Íslandi.

0 Comments
  • Berufjörður
  • Blóðþorri
  • Chile
  • Færeyjar
  • ISA-veira
  • Laxar fiskeldi
  • Reyðarfjörður
0 Like!
Deila
Magnús Sveinn Helgason

Recent comments

    Tags

    Arnarfjörður Arnarlax Bann við sjókvíaeldi Erfðablöndun Hafrannsóknastofnun Laxadauði Laxalús MAST Matvælastofnun Mengun Noregur Skotland Sleppislys strokulaxar Áróðursstríð sjókvíaeldisfyrirtækja
    Skilmálar og persónuvernd
    Umhverfissjóðurinn The Icelandic Wildlife er ekki rekinn í ágóðaskyni (non-profit).
    Hann er sjálfseignarstofnun og starfar samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir.

    © 1996-2018, Icelandic Wildlife Fund
    logo