Stundin greinir frá því að starfsmaður laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish hafi hringt í kajakræðarann Veigu Grétarsdóttur sem birti á dögunum sláandi myndir af ástandinu í sjókvíum fyrirtækisins, til að gagnrýna hana fyrir að hafa tekið upp myndirnar og upplýst alþjóð um ástandið

„Hann var ósáttur við að ég hefði ekki leitað til Arctic Fish með mínar áhyggjur í staðinn fyrir að fara þessa leið og koma myndunum í fjölmiðla. En ég átti svo sem alveg von á að fá svona símtal.”

Starfsmaðurinn er formaður bæjarráðs Ísafjarðar, Daníel Jakobsson.

Það er ekki of hraustlegt að tala um sjókvíaeldismafíu þegar vinnubrögðin eru svona.